Sumarstarf — Marketplace samþættingar
50skills
Job description
Sumarstarf — Marketplace samþættingar
50skills
11. May 2026
Fullt starf
Um starfið
50skills leitar að sumarstarfsmanni til að efla Journeys Integration Marketplace – safn tilbúinna samþættinga sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að tengja mannauðs-ferla sína við önnur kerfi (Slack, BambooHR, Greenhouse, DocuSign og fjölmörg fleiri).
Þú munt byggja samþættingar frá A til Ö: stilla auðkenningu, kortleggja API-endapunkta, skilgreina webhooks og skrifa hjálpargreinar sem útskýra hvernig hver samþætting virkar. Þetta er kjörið starf fyrir nemanda eða nýútskrifaða manneskju sem hefur áhuga á því hvernig SaaS-vörur tala saman, hefur gaman af því að lesa skjölun og vill kynnast því hvernig nútíma vöruteymi vinnur.
Verkefni
Byggja nýjar samþættingar í marketplace með því að stilla endapunkta, auðkenningu (OAuth2, API-lykla, bearer tokens o.fl.) og webhooks
Lesa og túlka API-skjölun frá þriðju-aðilum
Hafa samband við söluaðila eftir þörfum til að fá sandbox-aðganga, prófunaraðgang eða nánari skýringar á API-um
Skrifa skýrar hjálpargreinar fyrir viðskiptavini um hverja samþættingu sem þú gefur út
Prófa samþættingar enda á milli áður en þær eru birtar
Vinna með vöru- og þróunarteyminu þegar verkefni krefjast dýpri tæknilegrar aðkomu
Reynsla og hæfni
Kunnátta við að lesa tækniskjölun á ensku
Grunnskilningur á því hvað API er og hvernig auðkenningaraðferðir (OAuth, API-lyklar o.s.frv.) virka – eða áhugi á að læra það fljótt
Skipulagning og sjálfstæði – mikið af vinnunni er unnið sjálfstætt og þér er treyst til að leysa úr hlutum áður en þú spyrð
Góð skrifleg tjáning, bæði í tölvupóstum til söluaðila og í hjálparefni fyrir viðskiptavini
Hentar vel fyrir nema eða nýútskrifaða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, upplýsingatækni eða skyldri grein
Aðrir kostir
Einhver reynsla af API-tengingum (Postman, skólaverkefni, áhugaverkefni)
Þekking á OAuth2 ferlinu
Reynsla af því að skrifa tækniskjölun eða leiðbeiningar
Fríðindi
Frír hádegismatur og snakk á skrifstofunni alla daga
Sveigjanlegur vinnutími
Samkeppnishæf laun
Raunveruleg vara, raunverulegir viðskiptavinir og raunveruleg ábyrgð frá fyrsta degi
Um 50skills
50skills er ungt fyrirtæki í örum vexti sem hjálpar mannauðsteymum að sjálfvirknivæða ferla sína og skapa eftirminnilega upplifun fyrir starfsfólk.
Við leitum að réttu manneskjunni til að ganga til liðs við okkur í sumar og leggja sitt af mörkum frá fyrsta degi. Við erum drífandi og nýjungagjörn – en fyrst og fremst frábært teymi af fagmanneskjum sem elskar það sem það gerir.
Við viljum hafa vinnustaðinn okkar eins fjölbreyttan og hægt er og hvetjum fólk af öllum kynum og uppruna til að sækja um.
Skrifstofur okkar eru í Kópavogi.
Spurningar?
Fyrirspurnir um starfið má senda á Andra Janusson, tæknistjóra (andrijan@50skills.com)
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Tilvalið fyrir nema og nýútskrifaða.