Hópstjóri – kerfisstjórn og vöktun
Reykjavík
Job description
Hópstjóri – kerfisstjórn og vöktun
Reykjavík
12. May 2026
Fullt starf
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að hópstjóra til að leiða teymi kerfisstjórnunar og vöktunar hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar til að vinna að uppbyggingu og framþróun þjónustuferla við notendur.
Hefur þú brennandi áhuga á ferlum, þjónustu og tækni?
Þá gæti þetta verið starf fyrir þig…
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að öflugum hópstjóra til að leiða teymi kerfisstjórnunar og vöktunar hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Markmið starfsins er að vinna að uppbyggingu og framþróun þjónustuferla við notendur. Hópstjóri hefur yfirsýn yfir verkefni teymisins, tölfræði þjónustunnar og tryggir að hún sér örugg, áreiðanleg, skilvirk og í samræmi við þær kröfur og væntingar sem til hennar eru gerðar.
Sem hópstjóri kerfisstjórnunar og vöktunar munt þú…
Stýra og halda utan um teymið
Stýra verkefnum samkvæmt verklagi upplýsingatækniþjónustu
Bera ábyrgð á innleiðingu og utanumhaldi þjónustuferla
Hafa yfirsýn yfir fjármál teymisins og samþykkja reikninga
Taka þátt í setningu og eftirfylgni árangursmarkmiða
Taka þátt í samstarfshópum
Vera stuðningur við deildarstjóra tæknireksturs
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
Framúrskarandi leiðtogafærni
Reynsla af stjórnun teyma
Þekking og reynsla af þjónustuferlum
Reynsla af fjárhagsáætlanagerð og annarri áætlanagerð
Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum
Haldbær tækniþekking
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Á dögunum vann þjónustu og nýsköpunarsvið til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi hennar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Við bjóðum upp á
Fyrsta flokks vinnustað
Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
Krefjandi og skemmtileg verkefni
Öfluga nýliðamóttöku
Sálrænt öryggi og skapandi menningu
Góða liðsheild og góð samskipti
Samkennd og virðing
Þekkingarumhverfi
Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
Heilsueflandi vinnustað
Gott vinnuumhverfi
30 daga í sumarleyfi
36 stunda vinnuviku
Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
Heilsu- og samgöngustyrk
Sundkort
Menningakort
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 19. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Baldur Þorsteinsson deildarstjóri tæknireksturs í gegnum tölvupóstfangið eirikur.baldur.thorsteinsson@reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.
Vakin er athygli á stefnu um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er