Hópstjóri DevOps
Reykjavík
Job description
Hópstjóri DevOps
Reykjavík
13. May 2026
Fullt starf
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum hópstjóra til að leiða DevOps teymi hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Markmið hópstjóra er að stuðla að skilvirkri og ábyrgri nýtingu á Microsoft Azure aðalskýjaumhverfi Reykjavíkurborgar.
Ert þú með góða þekkingu á upplýsingatækni og reynslu af Microsoft Azure umhverfinu?
Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig…
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum hópstjóra til að leiða DevOps teymi hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Hópstjóri mun starfa í umhverfi með teymum sem hafa mismunandi aðkomu að aðalskýjaumhverfi borgarinnar.
Starfið felur bæði í sér leiðtogahlutverk og tæknilega vinnu. Einnig felst í hlutverkinu að efla samstarf milli teyma, styðja við stjórnendur og skapa sameiginlega vitund teyma í tengslum við nýtingu á Microsoft Azure. Markmið starfsins er að stuðla að skilvirkri og ábyrgri nýtingu á Microsoft Azure aðalskýjaumhverfi Reykjavíkurborgar.
Viðkomandi þarf að búa yfir getu til að halda góðri yfirsýn, styðja við og hafa færni til að leiða hóp sérfræðinga.
Í teyminu verða sérfræðingar m.a. í netmálum, Kubernetes, CI/CD og Terraform. Virði hópstjórans felst í samskiptum og samræmingu; að hafa næga yfirsýn til að spyrja réttra spurninga, taka rökstuddar ákvarðanir og halda fókus á því sem skiptir mestu máli.
Sem hópstjóri DevOps munt þú…
Leiða og þróa Azure DevOps teymi
Vera aðaltengiliður milli DevOps teymisins og þróunarteyma innan Reykjavíkurborgar
Hafa umsjón með daglegum rekstri og öryggi Azure umhverfisins
Þýða þarfir rekstrar og þróunar yfir í tæknilegar ákvarðanir og forgangsröðun verkefna
Viðhalda og bæta innviðaforritun (Infrastructure as Code með Terraform)
Tryggja að öryggisstöðlum og -reglum sé fylgt
Tryggja að skráðum ákvörðunum um tæknilega útfærslu og ferlum sé fylgt
Tryggja að skjölun og vinnubrögð s.s. merking auðlinda séu samræmd
Starfa í nánu samstarfi við deildarstjóra tæknireksturs
Taka virkan þátt í skipulagningu spretta, úrlausn beiðna og framkvæmd verkefna
Menntun og hæfni sem krafist er:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
Leiðtogafærni og reynsla af stjórnun verkefna og teyma í upplýsingatækni
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Reynsla af breytingastjórnun er æskileg
Reynsla og þekking á vinnu, verklagi og þörfum þróunarteyma
Reynsla af DevOps hugmyndafræði
Reynsla og þekking á Azure, Entra ID, og Kubernetes
Færni í IaC og skriptum
Reynsla af virku kostnaðareftirliti í Azure
Reynsla af rekstri og vöktun kerfa, betrumbótum og fyrirbyggjandi ráðstöfunum
Þekking á reglum um persónuvernd og tilmælum ríkisins um skýjaumhverfi kostur
Góð hæfni í framsetningu á tæknilegu og flóknu efni á einfaldan hátt
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun
Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Á dögunum vann þjónustu og nýsköpunarsvið til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun borgarinnar er að gera starfsemi hennar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega, og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Við bjóðum upp á
Fyrsta flokks vinnustað og vinnuaðstöðu
Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Krefjandi og skemmtileg verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
Öfluga nýliðamóttöku
Sálrænt öryggi og skapandi menningu
Góða liðsheild og góð samskipti
Samkennd og virðing
Þekkingarumhverfi
Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
Heilsueflandi vinnustað
Gott vinnuumhverfi
30 daga í sumarleyfi
36 stunda vinnuviku
Heilsu- og samgöngustyrk
Sundkort
Menningarkort
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Baldur Þorsteinsson deildarstjóri tæknireksturs í gegnum tölvupóstfangið eirikur.baldur.thorsteinsson@reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.
Vakin er athygli á stefnu um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.